157. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2025.

fjöleignarhús.

107. mál
[16:47]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Já, þetta er með skemmtilegri málunum sem hafa verið tekin til umfjöllunar, alla vega í þeirri nefnd sem ég sit í, hv. velferðarnefnd. Það var gaman að ræða þetta fram og til baka, bæði á þessu þingi og því síðasta. Markmiðið er frábært og ég held að við séum einróma í því að vilja að heimild til gæludýrahalds verði rýmkuð. En það er spurning hvernig það er gert. Að mati okkar sem stöndum hérna að frávísunartillögu, og að mínu mati, þá á eftir að binda þannig um hnútana að frumvarpið búi ekki til fleiri vandamál en fyrir eru í dag og það þurfi ákveðna varnagla. Því þurfi að vísa þessu aftur til ríkisstjórnarinnar með það í huga og taka tillit til þeirra athugasemda sem komið hafa. Það skal tekið fram að við erum með því að samþykkja þetta óbreytt að ganga talsvert lengra en frændur okkar á Norðurlöndunum hafa farið í þessum efnum. (Forseti hringir.) Við leggjum til að þetta verði skoðað nánar og bundið þannig um hnúta að ekki verði til ný vandamál.