fjöleignarhús.
Frú forseti. Við í þingflokki Framsóknar leggjumst ekki gegn rýmkun eða endurskoðun þeirra reglna er varða dýrahald í fjöleignarhúsum. Við teljum hins vegar að frumvarpið sé bæði illa undirbúið og efnislega ófullnægjandi. Það tryggir hvorki nægilega vernd viðkvæmra hópa né jafnvægi milli hagsmuna dýraeiganda og annarra íbúa í fjöleignarhúsum. Með þessu frumvarpi er verið að ganga gegn sjónarmiðum um meðalhóf og markmiðum laga um friðhelgi einkalífs og heimilis.Það var góð umfjöllun í nefndinni um þetta mál en við teljum að það sé verið að ganga of langt og að aðferðin sem verið er að leggja til hér sé ótæk. Því leggjum við til frávísunartillögu um að málinu verði vísað aftur til ríkisstjórnarinnar og endurskoðað með því hugarfari að mæta þeim alvarlegu athugasemdum sem koma m.a. frá astma- og ofnæmisfélaginu og fleiri umsagnaraðilum sem vöruðu (Forseti hringir.) við þessari vegferð vegna heilsu fólks í landinu.