fjöleignarhús.
Virðulegi forseti. Ég elska hunda og ketti. Mér finnst bara alveg meiri háttar að geta fengið að eiga slík dýr. Mér finnst svolítið leiðinlegt, af því ég heyri að það er svipaður tónn í öllum hv. þingmönnum, að menn geti ekki náð saman um þetta. Eins og ég skil þá umræðu hér hafa menn áhyggjur af ákveðnum þáttum sem örugglega væri hægt að vinna betur. En það verður hins vegar að segjast eins og er að það kom mér mjög á óvart að hlusta á hv. þingmann Grím Grímsson, fyrrverandi lögreglumann, segja okkur að við mættum gera það sem við vildum í íbúðunum okkar. Ég man það að fyrir nokkrum áratugum síðan átti ég íbúð í fjöleignarhúsi og það gat nú alveg komið fyrir að vinnufélagar hv. þm. Gríms Grímssonar kæmu í heimsókn ef maður hagaði sér með einhverjum hætti. [Hlátur í þingsal.] Ég held þetta sé ekki alveg nákvæmt hjá hv. þingmanni. En ég tek það fram að það er mjög langt síðan þetta gerðist og mjög sjaldan.