fjöleignarhús.
Virðulegur forseti. Ég vil árétta að það er ríkur vilji til að rýmka heimildir en gerum það þannig að meiri sátt geti náðst þar um. Þarna er verið að tala um frelsi og fleira í þeim efnum sem maður getur tekið vel undir og hefur mikinn skilning á gæludýrahaldi og mikilvægi þeirra og hvað þau gera fyrir okkur, blessuð dýrin, en lærum nú einu sinni af þeim sem við lítum oft til á Norðurlöndunum. Þar er t.d. gert ráð fyrir því að húsfélög geti kveðið á um þetta í sínum reglum. Hér er verið að ganga lengra. Þetta snertir heilsu fólks, þetta snertir eignir og eignarrétt fólks. Lítum til þess svo þetta skemmtilega og góða mál geti náð fram í samstöðu okkar allra.