markaðir fyrir sýndareignir.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir lýsingu á frumvarpinu. Maður þarf, við að renna í gegnum þetta, helst að fá einmitt einhvern til að lýsa mörgu af því sem þarna kemur manni fyrir sjónir á mannamáli, enda margt hvað svolítið tyrfið, óneitanlega. Aftur, á mannamáli, en hér er verið að fjalla um sýndareignir: Hver eru áhrifin að mati hæstv. fjármálaráðherra, ef nokkur, af þessum breytingum eða einhverjum öðrum breytingum sem kann að vera að vænta úr fjármálaráðuneytinu, á t.d. möguleika almennings eða jafnvel fyrirtækja eða fjárfestingarsjóða til að sýsla með þessar allra algengustu rafmyntir eins og t.d. Bitcoin? Er það inni í þessu eða er jafnvel ekki rétt yfirleitt að tala um það í þessu sambandi? Sýndareign er sannarlega nokkuð víðtækt hugtak. Þar kemur inn margt og sannarlega margt tæknilegt en Bitcoin-tæknin er nú samt alls ekkert svo tæknilega flókin og það eru fleiri tugir þúsunda Íslendinga sem eiga nú þegar Bitcoin. Það eru kannski ekki fyrir hendi neinar skýrar reglur um þetta, enda mjög nýtt fyrirbæri. Er þetta skref í þá átt eða hvað er á seyði út frá þessum breytingum gagnvart því sem ég er að vísa til?