157. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2025.

markaðir fyrir sýndareignir.

228. mál
[17:10]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir spurninguna og fyrir að sýna þessu máli áhuga. Þetta er auðvitað mjög mikilvægur málaflokkur. Sýndareignir eru til þess að gera nýr flokkur eigna. Markmið reglnanna er fyrst og fremst að tryggja hagsmuni almennings sem neytenda og fjárfestingarsjóða líka þannig að markaðir með þessar eignir geti virkað eðlilega. Það er oft þannig með nýja eignaflokka að hættan er sú að í skjóli lítillar almennrar þekkingar á þeim geti þrifist óheiðarlegir viðskiptahættir. Þessar eignir eru um margt áhugaverðar en ekki síður tæknin sem er á bak við þær og hana má nota í mörgum öðrum tilgangi. Ég veit til þess að það eru íslensk fyrirtæki sem hafa verið í nýsköpun á þessu sviði sem bíða eftir því að þessar reglur verði lögfestar vegna þess að til þess að geta átt í viðskiptum þarftu að uppfylla ákveðin skilyrði, svo að gagnaðilarnir í viðskiptunum geti treyst því að þú hlunnfarir þá ekki. Þess vegna held ég að það sé mjög mikilvægt að við séum núna að flytja þetta mál og raunar hefði verið heppilegra að því hefði verið lokið í vor. Ég held að þetta sé töluvert mikil framför vegna þess að á öllum virkum mörkuðum verðum við að hafa einhvers konar reglur sem tryggja hagsmuni gagnaðila í viðskiptum.