157. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2025.

markaðir fyrir sýndareignir.

228. mál
[17:14]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Ég þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir ágætar spurningar. Ég held að það sé mjög mikilvægt að við gerum greinarmun á viðhorfum mínum sem einstaklings og svona almennt spurt: Myndi ég kaupa Bitcoin? Nei. En ég er nú bara gamall karl og er þannig að einhverju leyti pínulítið sammála Seðlabankanum. En það er ekki málið. Myndi ég kaupa einhver listaverk, nei, eða aðra hluti sem eru einhvers virði? Það fer bara alveg eftir mínum skoðunum. Ég held að við þurfum að gera þarna greinarmun annars vegar á þessu fyrirbæri og síðan á fjárfestingum í því. Það hefur sýnt sig að Bitcoin og sambærilegar rafmyntir hafa reynst sveiflast með öðrum hætti heldur en aðrar eignir og þær geta þess vegna verið skynsamlegur hluti af eignasafni, eignasafni sem er þá með það að markmiði að lágmarka sveiflurnar í því einhvern veginn í mörgum hlutum, þar með talið þessum eignum. Þannig að ég held að virði þessara eigna fari svolítið eftir því hvaða eignir það eru, af því að eins og hv. þingmaður vék að er þetta til þess að gera breiður flokkur eigna.

Síðan er spurningin um hvort ríkið ætti að eiga þetta. Nú er það auðvitað þannig, eins og hv. þingmaður veit, að það sem ríkið á mest af um þessar mundir eru skuldir þannig að ég hef kannski ekki nein plön um að leggja til neinar sérstakar fjárfestingar í þessu á komandi misserum meðan við erum að vinna á skuldastöðu ríkisins. En ég ítreka það sem ég sagði áðan: Kæmi til þess að íslenska ríkið ætti eignir og þyrfti að ávaxta þær þá myndum við auðvitað horfa til þess að lágmarka áhættuna í því og þá kæmu allar eignir til greina.