157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

Störf þingsins.

[13:36]
Horfa

Gylfi Ólafsson (V):

Frú forseti. Í gær birtist á vef þingsins svar hæstv. innviðaráðherra við fyrirspurn aðalþingmannsins míns, hv. þm. Maríu Rutar Kristinsdóttur, um farnetsþjónustu. Það svar staðfestir að þó að ríkið eigi fyrirtæki sem heitir Öryggisfjarskipti stendur það því miður ekki undir nafni í að tryggja örugg fjarskipti.

Forsagan er þessi: Í hittiðfyrra var samþykkt áætlun um að stofnvegir yrðu dekkaðir með farsímasambandi fyrir árslok 2026. Til þess var sett fram metnaðarfull en skynsöm leið. Hún fólst í því að ríkið úthlutaði tíðniheimildum án endurgjalds og lagði fram fjármuni til uppbyggingar svokallaðra óvirkra innviða, sem eru sendimöstur og hús og þess háttar, gegn því að einkaaðilar keyptu og settu upp farsímasenda eða farnetssenda. Þannig átti ríkið að ná gírun í uppbygginguna, eins og sagt er á bankamáli, þ.e. að ná fram miklu meiri árangri heldur en peningarnir raunverulega sögðu til um. Fulltrúi ríkisins í þessu verkefni var ríkisfyrirtækið Öryggisfjarskipti, en svo stóð ríkið ekki við sinn hlut. Öryggisfjarskipti fengu ekki pening og drógu sig út úr verkefninu sem hefur valdið því að verkefnið hefur tafist um a.m.k. tvö eða þrjú ár og ríkið er ekki lengur með forræði á málinu heldur er orðið aftursætisbílstjóri sem borgar ekki einu sinni bensínpening. Í svarinu segir að til að ná dekkun á vegflokkum A–D, eins og það er kallað á kerfismáli, á landinu öllu þurfi 850 milljónir og í svarinu er það nánar greint niður eftir vegflokkum og landshlutum, en þetta er vel að merkja heildarkostnaðurinn, ekki hlutur ríkisins.

Frú forseti. Farnetsamband á vegum er atvinnulífsmál, ferðaþjónustumál, lífsgæðamál og öryggismál. Ég vil hvetja ríkisstjórnina til að taka aftur upp samkomulagið frá 2023 og að ríkið standi sómasamlega að því að fjarskipti á vegum séu örugg.