157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

Störf þingsins.

[13:48]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Ríkisstjórnin hefur sett af stað vinnu við mótun atvinnustefnu til ársins 2035. Um afar jákvætt framtak er að ræða og slík stefna er ekki aðeins efnahagslegt skjal heldur samfélagsleg yfirlýsing um það hvernig við viljum byggja Ísland. Hún þarf að vera heildstæð, framsækin og byggjast á raunverulegri stöðu fólks og atvinnulífs í öllum landshlutum. Margar umsagnir bárust í samráðsgátt stjórnvalda um atvinnustefnu stjórnvalda og í því ljósi vil ég, frú forseti, leggja áherslu á að þegar unnið verður úr umsögnum og frekari vinna að atvinnustefnu hefst með hagaðilum verði horft sérstaklega til samfélagslegra þátta. Með þessu á ég við að horft verði til stöðu ólíkra samfélaga og landshluta sem eru mismunandi. Í sumum þeirra hefur atvinnulífið breyst verulega á síðustu árum og í mörgum byggðum er hlutfall erlends vinnuafls til að mynda orðið mjög hátt. Það kallar á markvissar aðgerðir til að styrkja menntun, húsnæði, inngildingu og samfélagslega innviði þannig að allir geti lifað og unnið hér við góð kjör og skapað verðmæti.

Atvinnustefnan þarf jafnframt að endurspegla nýja tíma. Hún þarf að styðja við nýsköpun, fjölbreytni og eflingu allra þjóðfélagshópa, yngri sem eldri og þeirra sem vilja taka þátt í verðmætasköpun framtíðarinnar. Þar skiptir samstarf ríkis, sveitarfélaga og atvinnulífsins sköpum og við verðum að vinna saman, ekki í sílóum heldur með sameiginlega framtíðarsýn. Verkefnið HeimaHöfn, sem starfrækt er á Hornafirði, er gott dæmi um slíkt samstarf. Þar hefur tekist að tengja saman atvinnu, nýsköpun og samfélagslegan kraft á forsendum heimamanna. Slíkar fyrirmyndir sýna hvað hægt er að gera þegar stjórnvöld skapa rammann en fólkið í landinu fyllir hann með hugviti og vinnusemi.

Frú forseti. Við þurfum atvinnustefnu sem nær utan um allt landið, sem tekur mið af fólkinu, byggðunum (Forseti hringir.) og samfélögunum sem halda henni á lofti. Sú leið tryggir bæði stöðugleika og framtíðarvöxt Íslands.