157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

Störf þingsins.

[14:00]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Íbúaþróun er ágæt mælistika á styrk eða veikleika samfélaga og sýnir hvar stjórnvöld þurfa að vera á verði, hvort sem er að vinna að jákvæðri þróun eða koma með aðgerðir sem efla byggð með einhverjum hætti. Sá stuðningur getur verið með margvíslegum hætti og skilað sér til baka í sterkara samfélagi og atvinnulífi og betri nýtingu á þeim innviðum sem nú þegar eru til staðar. Þar erum við að tala um samgöngur, menntastofnanir, heilbrigðisþjónustu, verslun og þjónustu og fjölbreytt fyrirtæki sem til staðar eru.

Í því ófremdarástandi sem ríkt hefur á húsnæðismarkaði, sérstaklega hér á höfuðborgarsvæðinu, og nú er verið að bregðast við af krafti af stjórnvöldum, hefur margt ungt fólk kannað möguleika á búsetu á landsbyggðinni þar sem húsnæðisverð og leiga er lægri og vantar víða fólk með fjölbreytta menntun í margvísleg störf. Þessi þróun vekur vonir um að ungt fólk gefi landsbyggðinni meiri gaum til búsetu þar sem stressið er minna og tækifæri til nýsköpunar eru mýmörg, gott að ala upp börn, engir biðlistar í leikskóla og öflugt skóla-, íþrótta- og tómstundastarf. Okrið á húsnæðismarkaðnum verður að stöðva og lánakjör bankanna eru ekki í neinu samræmi við það sem gerist í nágrannalöndum okkar og er sjálftaka bankanna þar stærsti vandinn sem upptaka evru með ESB-aðild breytir engu um og er töfralausn sem stenst ekki skoðun, því miður.

Það jók mér bjartsýni fyrir hönd landsbyggðarinnar að íbúum hefur fjölgað í nokkrum landshlutum síðustu 11 mánuði eins og t.d. á Vestfjörðum. Það ber vott um að fólk er að gefa landsbyggðinni meiri athygli og vill setjast þar að með sínar fjölskyldur. Það er hagur allra landsmanna að landsbyggðin sé öflug og nýti sína innviði til fulls. Við eigum sterka höfuðborg saman en það þarf líka að vera jafnvægi í búsetu og búsetuskilyrðum um allt land til jafns við umræðu um jöfnun atkvæða. Atvinnustefna til framtíðar þarf að byggjast á samkeppnishæfum búsetuskilyrðum og möguleikum á fjölbreyttum atvinnutækifærum til sjávar og sveita í sátt við umhverfið.