157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[14:19]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Sú sem hér stendur hefur fyrst og fremst verið að kvarta yfir því að ekki sé hlustað á þingið þegar það fer yfir frumvörp þannig að ég hvet hæstv. ráðherra til að koma með málin sín inn og hlusta á það sem fagnefndirnar og þingmennirnir hafa um þau að segja.

Hvað varðar símabann í skólum þá held ég að flestir séu orðnir sammála um að þetta tæki er bara stórhættuleg samfélagsrannsókn, sérstaklega fyrir börnin okkar, ég tala nú ekki um samfélagsmiðlana en foreldrar hleypa börnunum allt of snemma inn á þá og allt of ung börn eru að takast á við eitthvert umhverfi sem þau hafa ekki þroska til að takast á við. Svo sannarlega styð ég það að við séum með skýrar reglur í kringum börnin okkar og notkun á þessum tækjum. En, virðulegur forseti, með allri virðingu, þessi málaflokkur sem hæstv. ráðherra fer fyrir og ástandið í þessum málaflokki — talandi um samræmdar reglur um síma, hvað með samræmd próf? Hvað með samræmi í því að börnunum okkar sé kennt að lesa, skrifa og reikna, það sem skiptir mestu máli? Ég hvet hæstv. ráðherra til að ráðast að rót vandans og koma hér með alvarleg mál sem skipta grunnskólana í landinu máli. Með fullri virðingu fyrir þessu máli hér þá eru flestir grunnskólar í landinu nú þegar að takast á við vandamálið sem fylgir símanotkun barna í skólum.