157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[14:20]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir andsvarið. Ég get upplýst hana um það að við erum á fleygiferð að taka á þeim málum sem hafa einmitt setið á hakanum undanfarinn áratug jafnvel. Við erum t.d. að fara í það með nýjum gagnagrunni og matsferli að fylgjast með barninu frá upphafi, hvort það þurfi talmeinafræðing, aðstoð vegna lesblindu eða það hvernig einkunnir koma — þetta mun fylgja barninu frá upphafi. Við erum að taka á þessum hlutum virkilega vel. Við erum að stefna að því t.d. með gagnagrunninum að setja inn og ætlum að gera mat og taka próf í 6., 7. og 9. bekk, en sum sveitarfélög ætla að gera það í öllum bekkjum og það er bara flott, bara frábært. Það er enginn að banna neitt. Síðan erum við alltaf að rífast um hvernig einkunnir eru, hvort það séu bókstafir eða tölustafir. (Forseti hringir.) Það eina sem er í lögum er að það eigi að vera bókstafir í 10. bekk.