157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[14:23]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Jú, en staðan er bara sú að það eru mismunandi reglur og meira að segja börnin sjálf eru að kalla eftir samræmdum reglum. Það er einmitt það sem við erum að gera, hafa samræmdar reglur. Við hljótum að vera sammála um að það er engin lausn, eins og var í einum skóla, held ég, að þau skiptu út síma fyrir spjaldtölvu en spjaldtölvuna máttir þú fara með heim sem var meira að segja öflugra tæki en margir símar voru hjá börnunum. Við erum einmitt að sjá til þess að það séu samræmdar reglur, það gildi sama um alla. Eins og hefur komið fram margoft þá eru meira að segja börnin sjálf að biðja um þetta vegna þess að þau tala saman á milli skóla og þau átta sig á þessu strax og ef það gildir veikari regla í öðrum skóla en þeirra skóla þá heimta þau að fá veikari regluna. Er þá ekki betra að hafa bara samræmi?