grunnskólar.
Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég get ekki betur skilið en að þessu eigi þá að vera miðstýrt og skólasamfélaginu sé ekki treyst. En talandi um samráð við skólasamfélagið þá voru umsagnirnar sem bárust á endanum í heildina 17. Í frumvarpinu segir að það hafi verið starfandi starfshópur um mitt ár 2023 sem komst ekki að niðurstöðu. Ég hnaut um það í umsögn Skólastjórafélags Íslands að það harmaði að ekki hefði verið leitað eftir vilja og viðhorfum skólasamfélagsins. Það er í grunninn ekkert sérstaklega mikið af umsögnum frá skólasamfélaginu. Það er að sjálfsögðu ekki hæstv. ráðherra að kenna. Fólk náttúrlega ræður hvort það sendir inn umsagnir eða ekki. En ég get ekki merkt, miðað við umsagnarleysið og það kemur ekkert fram í frumvarpinu, að það hafi verið samráð fyrir utan þennan starfshóp. Er þá skólasamfélagið ekki inni í þessu? Er menntamálaráðuneytið bara að taka þessa ákvörðun þvert á það sem ég minntist á áðan, að skólarnir séu sjálfir búnir að setja sér reglur, það er ekkert að tala við þá? Ég get ekki skilið annað þegar ég les þetta plagg.