157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[14:25]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og ég verð bara að segja alveg eins og er: Málið er komið fyrir þingið og hvað verður þá um málið? Það fer fyrir nefnd og þá koma inn umsagnir frá hagsmunaaðilum. Það gæti verið skólafélag, það gæti verið kennarafélag, það gæti verið hver sem er. (Gripið fram í.) Síðan er málið tekið til meðferðar. Og svo er annað. Það stendur skýrt að þegar við ætlum að setja reglugerð þá verður það í góðu samráði við alla. Samtal og samráð verður númer eitt, tvö og þrjú í þessu máli. Við viljum líka kalla þetta símafrí. Við ætlum líka að vera í samráði og samtali við börnin vegna þess að við ætlum að fá þau með. Þau eru líka að kalla eftir því að fá þetta tækifæri. Ég held að við þurfum líka í sjálfu sér að horfa inn á við, við fullorðna fólkið, hvernig við notum þetta tæki og hvernig við notum þetta tæki þegar börnin eru að reyna að ná sambandi við okkur. Þannig að ég segi: Þetta verður samráð og samtal alla leið.