157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[14:31]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég held að við getum öll, eða mjög mörg a.m.k., tekið undir markmiðið í þessu máli og verið sammála um að það sé mikilvægt að setja okkur einhverjar reglur um síma í skólastarfi. Eins og hefur komið fram þá eru margir skólar og sveitarfélög búin að setja reglur nú þegar en ég veit að bæði kennarar og skólastjórnendur hafa óskað eftir því við ráðherra að fá stuðning í þessu máli. En það eru líka raddir sem eru ekki sammála og vilja vernda frelsi hvers og eins skóla til útfærslu. Það er nú þannig að þetta snýst líka um það að í einhverjum tilvikum er verið að nota símann sem kennslutæki og til að tryggja jöfnuð verður að tryggja aðgengi barna að tækjum í eigu skólans. Í því ljósi langar mig að spyrja hæstv. ráðherra: Hvernig hyggst ráðherra sjá það útfært og við hvaða aldur eigi börn að byrja að nota spjaldtölvur við nám? Og að hversu miklu leyti á nám að fara fram á skjá? Kannski kemur ráðherrann hér og vísar til vinnuhópsins í framhaldi. En ég spyr: Hvað er hans mat sem ráðherra þessa málaflokks varðandi þetta?