157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[14:36]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Jú, þetta er einmitt málið. Við verðum auðvitað að vanda til verka. Tæknin er komin til að vera. Við verðum líka að passa upp á að við séum að kenna á þessa tækni á ábyrgan hátt. Núna er t.d. stefnt að því strax eftir áramót að koma með gjaldfrjáls námsgögn. Ég tel að þar komi inn eitthvað í sambandi við spjaldtölvunotkun í skólum. Við verðum að taka þetta samtal. Ég held að það sé líka eitt mjög gott við þetta: Nú ætlum við að hleypa 600 kennurum að flottustu gervigreindartólum sem við höfum, eiginlega þeim flottustu á heimsvísu. Það segir okkur að við þurfum eftir það að átta okkur bæði á því hvernig er hægt að nota þessa tækni og líka hvað við verðum að varast. Það hefur sýnt sig að hætturnar eru gífurlegar. Þess vegna þurfum við að passa upp á það vel og vendilega að hafa samtal (Forseti hringir.) og samráð og númer eitt, tvö og þrjú er að vernda börnin fyrir tækninni en samt kenna þeim á hana.