grunnskólar.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir gott andsvar. Það birtist auðvitað í frumvarpinu að menn geta ekki komið sér saman um skýrslu, að gefa hana út, allir hagsmunaaðilarnir. Þeir eru listaðir upp í frumvarpinu, hverjir þeir hagsmunaaðilar eru sem komu að skýrslugerðinni sem kláraðist ekki af því að menn komu sér ekki saman um skýrsluna. Í stuttu máli sagt var hópur í samfélaginu sem aðhylltist það, án mikilla rannsókna, að koma skjám inn í skólana í miklu magni, án mikils undirbúnings fyrir kennara eða skólasamfélagið allt saman. Hluti þessa hóps menntaði sig í þessum fræðum og hefur fjárfest í fagmennsku og tíma í þessum fræðum og ef ráðherra ætlar að setja lög um það eða reglugerð að hluti þessara tækja verði tekinn út úr kennslunni er mögulega verið að vega að þessum hópi sem hefur staðið vörð um þetta inni í skólunum. Mig grunar að sá hópur hafi verið andvígur þessu eða hafi ekki getað komið sér saman um að það væri með einhverjum hætti hróflað við þessu. Ég sjálfur er ekki með — ég ætla ekki að nafngreina hér einhverja í pontu en þetta er málið, það er þarna hópur. Og það er ekkert grín að vera með 20 manna hóp þar sem allir hafa aðgang að internetinu og stýra þeim hópi, en það eru til kennarar sem geta gert það og finnst kannski að aðrir eigi að geta gert það og þeir eru ósáttir við það ef einhver ætlar að fara að binda hendur þeirra í þessu máli.