grunnskólar.
Frú forseti. Ég held að það sé alveg ljóst að lykillinn að lýðræðinu og að samfélaginu er það að geta tjáð sig í ræðu og riti. Sá sem getur staðið fyrir framan hóp og tjáð sig munnlega eða skrifað texta sem er þannig að aðrir vilja lesa hann er kominn á góðan stað. Því til viðbótar er það félagsfærni, að fólk geti komið inn í hóp manna, rætt málin, spurt spurninga, komið skoðunum sínum og viðhorfum á framfæri, fengið gagnrýni, svarað gagnrýni og fundið lausnir á málum. Þetta er skólinn ekki að gera nógu vel í dag. Með því að samræma reglur um snjallsímanotkun eða -bann þá er ákveðins jafnræðis gætt sem ég styð. En það verður þá að koma fram í reglugerðinni. Ég tek undir orð hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar að þegar menn tala um að spjaldtölvuvæðing sé gengin of langt þá eru menn líklegast að tala um að tilgangurinn sé ekki alltaf skýr. Ef þú ert með tæki við hendina, þó að slökkt sé á því, þá er búið að sýna fram á það að það er truflun af því. Þetta eru djúp og alvarleg mál sem við þurfum að þora að ræða vegna þess að það er mjög auðvelt að segja: Ætlar þú að sofa af þér internetið, ertu risaeðla? Ertu gamaldags, ertu frá steinöld? Þetta er það sem fólk fær í andlitið sem vill gera eitthvað í þessum málum. En á móti myndi ég segja: Bjóðum upp á tvo skóla, A og B. Annar þeirra er með þetta snjalldæmi allt og hinn ekki. Í hvorn myndu foreldrar vilja senda börnin sín og hvor þeirra myndi skila betri árangri? Þar er ég alveg viss um hvor þeirra myndi gera það.