157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[15:07]
Horfa

Tómas Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Önnu Maríu Jónsdóttur fyrir ljómandi fína ræðu á sviði sem hún þekkir vel til. Með Skrekk, ég horfði nú á þetta í gær og og allt í lagi að taka undir þetta. Ég á marga góða vini í Breiðholti sem starfa líka með ungmennum þar þannig að ég fagna þessu gríðarlega fyrir hönd vina minna. En ég veit ekki alveg hvort þetta sé einhver staða á menntakerfinu, þá held ég kannski að við verðum mögulega að fjölga símum ef við erum farin að vinna Skrekk út af því. En mig langar að spyrja kennarann út í það sama og ég spurði hæstv. ráðherra hérna áðan, um að allir skólar séu búnir að setja sér reglur. (Gripið fram í.) Allir, nema 3%, 97% skóla eru búnir að setja sér einhverjar reglur. Það eru 3% skóla sem hafa ekki gert það, samkvæmt umboðsmanni barna árið 2024. Þannig að skólarnir eru að setja sér reglur og reyna að hafa valdið hjá sér. Ég fékk ekki svar frá hæstv. ráðherra áðan en það væri gaman að fá svar frá kennara í kerfinu núna. Er þessu þá bara ekki framfylgt? Er kennurum ekki, eða skólayfirvöldum, skulum við frekar segja, og kennarar eru hluti af því, er þeim ekki treystandi fyrir því að framfylgja þessu? Finnst hv. þingmanni þörf á miðstýringu af því að kennurum og skólayfirvöldum, sem eru að reyna að setja reglurnar og hafa þekkinguna hjá sér, er hreinlega ekki treystandi fyrir þessu?