157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[15:08]
Horfa

Anna María Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég var ekki með tölur yfir hversu margir skólar voru búnir að setja sér reglur en hann segir að það séu 97% skóla. Þetta snýst ekki um að skólunum sé ekki treystandi til þess að fylgja þessum reglum eftir heldur snýst þetta um að fá stuðning við að viðhalda þeim. Það er tvennt ólíkt. Í einhverjum tilfellum geta þessar reglur mætt mikilli andstöðu og ef andstaðan er mikil þá verður þetta flóknara í framkvæmd. Þetta er búið að vera regla í mörgum skólum í mörg ár og mögulega hefur aldrei mátt vera með síma uppi við í kennslustundum en þær reglur hafa ekki alltaf verið virtar og það hefur verið miserfitt að framfylgja þeim. Jú, það hefur verið hægt að framfylgja þeim en það hefur alltaf farið einhver tími í það. En núna verður þetta allt miklu skýrara og skarpara og mögulega losnum við við þennan tíma sem fer í eitthvert stapp um síma og símanotkun í kennslustundum.