grunnskólar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir svarið. Ég reyndi að grennslast fyrir um það hjá hæstv. ráðherra áðan og fékk mörg orð en ekki eitt einasta svar, og hv. þm. Jón Pétur Zimsen kom inn á það sama og ég minntist á, að þessi starfshópur frá 2023 reyndi að komast að niðurstöðu um þetta mál en gerði það ekki. En svo kemur í ljós miðað við þau gögn sem liggja fyrir, þ.e. umsagnir og náttúrlega frumvarpið, það er augljóslega ekkert samráð í frumvarpinu enda var það eina sem við fengum frá hæstv. ráðherra, eins og svo oft þegar hann kemur inn með mál, að það á að koma með málið og svo á að fara í samráð. Skólastjórafélag Íslands í umsögn sinni harmar það að ekki hafi verið leitað eftir vilja og viðhorfum skólasamfélagsins, áður en þessi vinnsla fór af stað. Finnst hv. þingmanni sem kennara það ekkert skrýtið? Ég átta mig fyllilega á því að hér eru nefndir og málið mun fara inn í allsherjar- og menntamálanefnd og fá góða umfjöllun, það er ekki málið. En er ekki skrýtið, ef maður spyr hv. þingmann sem kemur úr skólasamfélaginu, að áður en svona fer af stað sé ekki leitað til skólasamfélagsins? Það stendur bara mjög skýrt og skorinort í umsögn Skólastjórafélags Íslands, svo það sé alveg á hreinu.
Ég vil reyndar koma því á framfæri, af því að ég er búinn að vera svo neikvæður, að ég er að sjálfsögðu sammála megintilgangi þessa frumvarps, höfum það alveg skýrt. En það er ýmislegt í framkvæmdinni sem ég vil líka reifa hér í ræðu á eftir. En þetta er spurningin til hv. þingmanns í bili.