157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[15:11]
Horfa

Anna María Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég veit ekki, þetta tal um síma og símalausar kennslustofur hefur verið í umræðunni í mörg ár. Þetta er ekki nýtt af nálinni og það þarf að vera með mjög, hvað á maður að segja, stillta heyrn ef maður hefur farið varhluta af því ákalli. Það hefur verið ákall um þetta í samfélaginu, ekki bara frá skólasamfélaginu heldur líka frá foreldrum og jafnvel verið stuðningur við það frá nemendum líka. Nú þekki ég þetta ekki, en ég held að ef þetta hefði bara komið eins og þruma úr heiðskíru lofti þá hefði kannski verið eitthvað til að tala um, en það gerði það ekki. Þetta er í framhaldi af mjög mikilli og massífri umræðu í samfélaginu um símalausa skóla.