grunnskólar.
Virðulegur forseti. Hv. þm. Tómas Þór Þórðarson vék að því hvort kennurum væri ekki treystandi fyrir þessu og að mínu mati er kennurum auðvitað treystandi, en ég þekki það frá eigin hendi að þetta er áreiti á kennara vegna þess að það skortir áþreifanlegan ramma utan um þessi mál. Það er áreiti, foreldrar eru að senda skilaboð inn í skólana, inn í kennslustundir og það er núningur út af þessu þannig að kennarar eru að ströggla.
Nú spyr ég hv. þingmann hvort tilfinning mín sé rétt um það að skólasamfélagið sé líflegra þegar símabann er, það sé meira líf í frímínútum og þetta sé því mögulega ákveðin heilsubót fyrir börn.