157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[15:14]
Horfa

Anna María Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Ég vil þakka hv. þingmanni kærlega fyrir spurninguna. Þetta er frábær punktur og þetta er náttúrlega eitthvað sem ég hefði átt að nefna áðan. Þetta hefur gjörbreytt öllum samskiptum, sérstaklega í frímínútum þegar nemendur mega heldur ekki vera í síma því að skólinn er símalaus. Það skiptir ekki máli hvort það sé í kennslustundum eða frítíma, það á ekki að vera sími innan skólans og þau mega ekki taka upp síma á skólatíma. Skólarnir hafa farið í það að fjárfesta í spilum og alls konar afþreyingu, keypt meira af boltum og ýmsum tækjum til að leika sér úti við. Þannig að jú, þetta hefur gjörbreytt öllum samskiptum til hins betra.