157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[15:16]
Horfa

Anna María Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir aðra mjög góða spurningu og stutta svarið við þessari spurningu er já. Með auknum samskiptum þá öðlastu aukna færni í móðurmálinu, tungumálinu, það er alveg öruggt mál. Ég held að þessi breyting sé ekki síður til þess fallin að auka þá færni og bara félagsfærni, eins og hv. þm. Jón Pétur Zimsen nefndi áðan. Það er gríðarlega mikilvægur þáttur bæði í tungumálinu og félagsfærni að lágmarka samskipti í gegnum síma.