157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[15:24]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V):

Hæstv. forseti. Ég kem hingað því að ég vildi leggja orð í belg og lýsa yfir stuðningi við frumvarpið sem hér er til umræðu. Ég ætla að byrja á að taka fram og segja eins og hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir, hæstv. forseti, gerði áðan að ég er almennt ekki hrifinn af bönnum. Svo segi ég einnig eins og hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson að fyrir nokkrum árum síðan hefði ég ekki tekið undir með þessu máli líkt og ég hyggst núna gera.

Hér hefur verið komið inn á Akureyrarbæ. Þar hefur reynslan sýnt síðan tekið var upp svokallað símafrí í grunnskólum Akureyrarbæjar haustið 2024 að samræmt símafrí í öllum grunnskólum hefur skilað mjög góðum árangri. Það sem ég hef líka heyrt í samtölum m.a. við starfsfólk míns gamla vinnustaðar, Menntaskólans á Akureyri, þar sem er ekki símabann, er að þá er töluverður munur á hegðun þeirra barna sem koma upp í framhaldsskóla þar sem símar eru leyfðir ef þau koma úr grunnskóla þar sem símar voru ekki leyfðir, þá hafa þau vanist því að vera í frímínútum og í tímum þar sem símar eru ekki notaðir.

Jafnframt hefur það breytt skoðun minni einfaldlega að eiga í samskiptum við ungmenni um þetta mál. Ég átti nýlega samtal við framhaldsskólanema í Menntaskólanum á Akureyri og Verkmenntaskólanum á Akureyri þar sem ég spurði þau hvað þeim fyndist. Þau eru nú ekki í grunnskóla sjálf en voru þar tiltölulega nýlega. Þau hvöttu mig flestöll til að styðja þetta mál. Sum þeirra vildu meira að segja fá símabann upp á framhaldsskólastigið, sem ég ætla ekki að taka afstöðu til á þessu augnabliki hvort ég sé tilbúinn að styðja eða leggja til en mér fannst það mjög áhugavert, og það hafa fleiri komið inn á það í ræðum hér að það virðist vera sem börn og ungmenni sjálf hreinlega vilji að það sé tekið frí frá tækjum innan veggja skólans.

Það hefur verið komið inn á það hér og mér fannst ráðherra svara vel þeim litlu áhyggjum sem ég hafði sem varða t.d. börn með sykursýki, bara sem dæmi, það er náttúrlega bara eitt dæmi, sem þurfa á símanum sínum að halda til að vakta sinn blóðsykur og gefa sér insúlín. Það er mjög nærtækt dæmi í mínu tilfelli þar sem ég á systkini sem eru í grunnskóla og eru með sykursýki. Mér fannst ráðherra slá þær áhyggjur mínar út af borðinu í sinni ræðu og að það verði tekið á öllum slíkum tilfellum í reglugerðinni þegar að henni kemur. Sömuleiðis heyrist mér á hæstv. ráðherra að við séum ekki að tala um að banna síma alfarið innan veggja skólans heldur einfaldlega að taka á notkuninni af því að ég held að það væri ekki góð hugmynd að banna börnum að koma með þá inn í skólann heldur aftur á móti væri þá reglugerðin einhvern veginn að kveða á um notkunina og að símarnir skyldu vera læstir inni í skápum eða settir ofan í tösku meðan á kennslustund stendur.

Ég heyrði það til að mynda nýlega að tölur yfir börn sem hverfa í Bandaríkjunum hafi farið algjörlega hríðlækkandi frá því á síðasta áratug síðustu aldar þar til núna og það sé varla tilviljun að það hafi gerst samhliða því að símanotkun hefur aukist töluvert. Þetta er að einhverju leyti öryggistæki, þannig að ég kannski vara við því að við förum að setja reglur þess eðlis að krakkar megi ekki vera með símann innan skólans, bara ekki í kennslustundum og frímínútum og líka í frístundastarfi o.s.frv. Það eru ekki rök gegn málinu heldur punktar sem ég vildi leggja inn í umræðuna.

Ég held að ég hafi snert á öllu sem ég ætlaði að snerta á. Ég lýsi yfir stuðningi við málið en hvet hv. allsherjar- og menntamálanefnd sem og hæstv. ráðherra til að hafa þessa tvo punkta í huga sem ég nefndi.