157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[15:38]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hennar ræðu og ég verð bara að segja alveg eins og er að ég er innilega ósammála henni í því að við séum að gera einhverja eina rétta ríkisleið, að við séum að taka, eins og frægt er, Ragnar Reykás á þetta og segja bara: Þessi leið gildir. Við erum að svara ákalli ekki síst frá börnunum sjálfum, númer eitt, tvö og þrjú, síðan frá foreldrunum og líka frá Kennarasambandinu og skólasamfélaginu vegna þess að það er bara staðreynd að nær 80% í könnuninni töldu að það yrði að taka á þessu máli, það segir okkur stóra sögu, og 69%, nærri 70%, töldu að þetta hefði truflandi áhrif á krakkana okkar í skólum. Það hlýtur að vera númer eitt, tvö og þrjú að krakkarnir fái frið í skólanum til að gera nákvæmlega það sem þau eiga að vera að gera, læra, og að það séu ekki einhver tæki eða önnur tól sem trufla það. Það er einmitt það sem við ætlum að gera, við ætlum að fá heimild til að setja þessa reglugerð og síðan að fara í samtal. Það hlýtur að segja sig sjálft að það er ekki gott ef við erum með sitthvorar reglur í hverjum einasta skóla, það gengur bara ekki upp. Meira að segja krakkarnir mótmæla því. Þau tala sín á milli og þau hafa komið til mín, ekki eitt, ekki tvö heldur fleiri börn og spurt: Hvernig stendur á því að þessi regla gildir í mínum skóla en það gildir allt önnur regla í skólanum við hliðina? Þessu er ég að svara. Þess vegna erum við að leggja þetta fram og við gerum þetta þannig. Ég trúi ekki öðru en að hv. þingmaður sé sammála því að það verður að setja einhverjar reglur um þetta innan skólastofunnar til að gefa börnunum okkar það næði sem þau þurfa að hafa til að læra.