grunnskólar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Jú, ég er fullkomlega sammála því og ég tók það skýrt fram í ræðu minni að þetta hefur reynst vel. Ég tók dæmi frá Öldutúnsskóla í Hafnarfirði sem reið á vaðið fyrir mörgum árum og vakti mikla athygli og ég lýsti því áðan hvernig það hefur verið til góðs og hefur bætt skólamenninguna, bætt samskiptin á milli barna og allir þættir þess hafa verið til góðs. Það er í rauninni ekki það sem ég var að spyrja að. Þetta hefur orðið til góðs vegna reglna sem settar voru og tóku gildi í byrjun árs 2019, reglna sem skólastjórnendur, kennarar, foreldrar og börn settu í sameiningu og komu sér saman um. Ég var að spyrja hæstv. ráðherra af hverju hann treystir ekki skólunum og sveitarfélögunum til að sjá um þetta? Af hverju þarf þessar ríkisreglur? Af hverju þarf að setja þær yfir allt? Ég spurði líka hvort hann hefði ekki áhyggjur eða hvað honum fyndist um þá gagnrýni að það væri viðkvæmt að ráðherra hverju sinni væri að stíga með svona hætti með valdi inn í innra starf grunnskóla.