grunnskólar.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur fyrir hennar ræðu og fagna því að vera inni á þingi þessa dagana og fá tækifæri til að svara vegna þess að mér finnst þetta mjög áhugavert. Ég held að ég sé að fara rétt með þegar ég segi að hv. þingmaður hafi talað fyrir samræmdum prófum, samræmdu mati í grunnskólum. Má þá skilja það þannig á þingmanninum að hún treysti ekki skólum til að meta gæði skólastarfs og þess vegna sé vilji fyrir samræmdu námsmati? Hvernig stendur á því að hv. þingmaður vilji ekki miðstýringu í samræmingu á snjallsímum en vilji það varðandi námsmat? Og það hefur líka verið talað um miðstýringu við mat á gæðum skólastarfs. Mér finnst þarna ekki alveg fara saman hljóð og mynd, ég verð að segja það eins og er.