grunnskólar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Mér finnst þarna mjög ólíku saman að jafna. Það er rétt að ég kom fram í fyrravor eða sumar, held ég það hafi verið, og lýsti því yfir þegar niðurstöður í PISA voru kunngjörðar, að meðal þess sem ég teldi að væri að í íslensku skólakerfi væri að samræmd próf hefðu verið tekin út eða hætt hefði verið með þau. Ég taldi skóla án aðgreiningar ekki vera að virka og fleira í þeim dúr. Varðandi samræmdu prófin þá skortir einmitt á að hafa samræmdar mælingar á milli skóla og ekki síður milli sveitarfélaga. Mér finnst þetta því mjög ólíku saman að jafna og legg símabann og samræmd próf ekki að jöfnu, langt því frá. Í rauninni var það það sem ég var að koma á framfæri í fyrra hversu mikilvægt það hefði verið, því að ég man þá tíma í sveitarstjórn að það var mikilvægt að fá þessar niðurstöður, bæði að geta skoðað á milli skólanna og við gátum treyst því að það væri sama mælitækið og niðurstöðurnar væru samræmdar, bæði á milli skóla í viðkomandi sveitarfélagi og að bera sig saman við önnur sveitarfélög. Hvar erum við stödd í samanburði við þetta eða hitt sveitarfélagið? Það var bara mjög dýrmætt í ákvarðanatöku og varð t.d. til þess í Hafnarfirði að farið var í sérstakt læsisverkefni fyrir rúmum áratug í leik- og grunnskólum sem hefur skilað miklum árangri af því við vildum bæta lesturinn og lesskilninginn strax í upphafi, þannig að samræmdu prófin nýttust vel.