157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[15:50]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur fyrir áhugaverð sjónarmið sem hafa komið fram í tengslum við þá lagalegu óvissu sem við stöndum frammi fyrir núna í þeirri jafnvægislist sem lýtur að því að nota símann sem einkatæki á skólatíma og hins vegar í þeim mörkum sem kennarar og starfsfólk skóla eru að setja í tengslum við slíka notkun. Nú hef ég litið ágætlega á frumvarpið og lögskýringargögnin. Tilgangurinn með lögunum er tvíþættur, annars vegar varðandi 14. gr. og hins vegar 30. gr. grunnskólalaga frá 2008. Þessi ákvæði lúta að skyldum nemenda og skólabrag. Við erum búin að koma auga á vandamálið sem skólasamfélagið lýsir, þ.e. að það eru ekki til samræmdar reglur um það hvernig við útkljáum það innbyrðis ósætti sem getur skapast á milli heimila, skóla og starfsfólks þegar þessi álitaefni skapast. Löggjafinn er hér að stíga inn í og veita ráðherra heimild til að búa til samræmdar reglur til að taka á þeim málum sem þar kunna að koma upp. Þetta er hér kallað félags- og forræðishyggja af hálfu hv. þingmanns. Látum það liggja á milli hluta. Ég tel að hérna sé bara um að ræða ábyrgðarmál sem er ekki pólitískt í eðli sínu. Við erum öll komin í þennan heim til að breyta rétt gagnvart náunganum og við sem erum foreldrar höfum það t.d. í okkar verkahring að setja mörk, en látum það bíða seinni umræðu. Ég tók eftir því að hv. þingmaður kallar þó eftir samræmdri stefnu í stafrænni námsgagnagerð og ég velti því fyrir mér hvernig það getur ekki flokkast til svokallaðrar félags- og forræðishyggju (Forseti hringir.) sem hv. þingmaður telur að fyrirliggjandi frumvarp feli í sér.