grunnskólar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir umvöndunarræðuna sem hér fór fram um að ég þyrfti að kynna mér hlutina betur. Það er bara gott að fá slíkar ábendingar og umvöndun úr þingsal og í ræðu hv. þingmanns.
Varðandi valdbeitingarheimildir tel ég að það væri hægt að fá úr þeim skorið og með öðrum hætti en að búa til samræmdar ríkisreglur um símanotkun innan skólanna. Þar sem ég vitnaði til þess að það væru ýmsar hugmyndir í gangi um hvernig ætti að nota tímann vek ég máls á hvatningu Samtaka iðnaðarins til þess að stafrænu hlutirnir verði allir skoðaðir í víðu samhengi með jafnræði barna í huga. Ég er þó örugglega síðust hér inni til þess að fara að mæla fyrir því að farin verði einhver ríkisleið í þeim efnum frekar en öðrum, eins og t.d. í námsgagnagerð og öðru slíku sem ég tel að þyrfti að fara að stokka upp (Forseti hringir.) eins og ég hef áður rætt í þessum ræðustól.