157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[16:14]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil bara taka undir með hv. þingmanni að það vantar sannarlega ekki stælana í mig. Það sem ég vil hins vegar gera í þessu máli er að nálgast það af ákveðinni auðmýkt, sem við eigum auðvitað að temja okkur. Ég geri það vegna þess að það er ekki lítið lagt á kennara, hvort sem þeir eru að fylgja reglum sem tilbúnar eru innan veggja skólans eða reglum sem settar eru af ráðherra í skjóli löggjafans. Alltaf er það þeirra að beita valdinu og til þess þurfa þeir traust; traust sem við eigum almennt til kennara og þeir reiða sig á í daglegu lífi og starfi. Hins vegar er það bara þannig að mjög margir kennarar lýsa þeim aðstæðum — og þessum aðstæðum hef ég sjálf kynnst á gólfinu með kennurunum, sem starfsmaður í sveitarfélagi og skólastarfi — að þeir eiga ekki alltaf þetta traust og þá þurfa þeir stundum að grípa inn í. Einhvern tímann var algengast að foreldrar segðu við börnin sín: Hlýddu kennurunum þínum. Það eru boð sem ekki öll börn fá og margir einstaklingar eru ósáttir við framferði kennara, stundum með réttu, ég ætla svo sannarlega ekki að fara að draga úr því. Það er þó og verður alltaf algengara að lögfræðingum sveitarfélaganna sé falið að leysa úr þeim ágreiningsefnum sem upp koma á skólagólfinu. Til þess þurfa þau — og þarna bara segi ég ykkur af fyllstu auðmýkt gagnvart því verkefni sem við eigum hér í þessum sal: Já, ég er lögfræðingur, það er bara allt í lagi að það sé ákveðinn status í því sem ég segi, að skoða þetta bara út frá stöðu reglugerðarinnar sem sett er með umboði löggjafans. Andspænis þeim reglum sem settar eru innan veggja skólans og innan sveitarfélags er valdboðið sterkara og hefur eitthvert hald og býr ekki til lögfræðileg ágreiningsefni í skólastarfi sem mér finnst alls ekki (Forseti hringir.) eiga að vera hluti af því skólastarfi sem við Íslendingar viljum sjá. Ég vona að hv. þingmaður sé sammála mér í því.