157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[16:17]
Horfa

Tómas Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég er alls ekkert að rengja það sem hv. þingmaður segir hvað varðar lögfræðina í þessu en ég var farinn að leita hér að hæstv. dómsmálaráðherra. Þetta er ekki það sem við erum að tala um, bara alls ekki. Nei, við erum að tala um framkvæmdina á þessu frumvarpi og hvernig það kemur inn á skólann og hvernig það kemur við námið. Það er alla vega það sem ég er að tala um. Það sem ég er búinn að vera að reifa hér er bara hvað gerist á gólfinu og hvernig kennarar og skólayfirvöld eru að díla við þetta, hvernig þau glíma við það sem er að gerast hverju sinni. Það getur vel verið að það skapi alls konar vandamál og eins og hv. þingmaður er búinn að benda á eru nú heldur betur vandamál í gangi núna. Við erum ekki að fara að komast að neinni niðurstöðu. Við erum bara ósammála um þetta og til þess er þessi salur og þessi ágæta málstofa. Ég bara sé ekki kostina í miðstýringunni á þessu akkúrat núna. Hv. þm. Dagbjört Hákonardóttir gerir það. Það er bara gott og blessað og þar held ég að við verðum að skilja við málið.