157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[16:18]
Horfa

Anna María Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Forseti. Ég vil þakka hv. þm. Tómasi Þór Þórðarsyni fyrir sitt innlegg og mig langar að benda á að starfsemi innan grunnskólans, af því að það er lögbundin menntun frá 1. bekk upp í 10. bekk, er miðstýrð. Það er miðstýrð námskrá sem allir þurfa að fylgja. Það eru miðstýrðir mælikvarðar sem allir þurfa að fylgja og hugsunin að baki er sú að jafnræði sé í námi. Því spyr ég spurninga sem ég reyndi að spyrja hv. þingmann áðan en fékk ekki almennileg svör við: Hvað er að því að vera með miðstýringu í námsumhverfi barna, þ.e. að öll börn búi við sama námsfrið og að námsumhverfi sé eins sambærilegt og við getum haft það? Það sem hefur verið að trufla skólastarf mest á undanförnum árum og misserum er símanotkun í kennslustundum. Eins og ég nefndi áðan hefur drjúgur tími farið í það að reyna að slökkva á símum og koma þeim niður þannig að námsfriður skapist. Við erum að tala um að við viljum að það sé jafnræði til náms. Þá viljum við að það sé jafnræði í öllum þessum þáttum. Það er ekki hægt að taka eitthvað út fyrir. Við þurfum að skoða heildarmyndina. Þess vegna fagna ég þessu frumvarpi mennta- og barnamálaráðherra.