grunnskólar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Önnu Maríu Jónsdóttur kærlega fyrir andsvarið. Miðstýringin er þarna í skólakerfinu upp í 10. bekk, eins og þú segir. Símarnir hafa kannski ekki verið þarna inni hingað til þar sem þetta er náttúrlega tiltölulega nýtt af nálinni eða nýtt vandamál. Hv. þingmaður talaði um jöfnuð fyrir öll börnin og hann varðar í raun og veru námið sjálft, miðstýringu námsgagna og hvernig börnin læra. Ég veit að hv. þingmaður er kennari en í samtölum mínum við aðra kennara í aðdraganda þessarar umræðu hefur verið bent á að það er ekki sátt hjá félagi kennara um þessa aðferð, hvað svo sem fólki finnst um það. Þetta er bara nokkuð sem ég bendi á. Mörgum kennurum finnst meira að segja jöfnuður í því að vera með eitthvert tæki, símann, inni í kennslustofunni. Svo getum við deilt um hvort það sé gott eða slæmt. Sumir þurfa bara virkilega á þessu að halda því að vandamálin í skólastofunni eru orðin svo rosalega margþætt, eins og hv. þingmaður veit væntanlega betur en flestir hér inni ásamt manninum fyrir aftan hana. Þetta eru svo mörg vandamál. Í Langholtsskóla er búið að koma inn með hvolpa á hlaupabretti til að glíma við krakka með athyglisbrest, ímyndið ykkur bara. Þetta er væntanlega allt annað en það sem var í gangi á kennaraferli hv. þingmanns þegar gert var svona: [Þingmaður klappar saman höndum.] Og þá bara þögðu allir. Ég myndi segja að það væri í raun og veru, ótrúlegt en satt, mögulega jöfnuður í því að einhverjir þurfi að vera með tæki þarna inni eins og Öryrkjabandalagið og fleiri benda á í umsagnarferlinu. Það er bara þetta sem ég hef áhyggjur af að gangi svo illa upp í framkvæmdinni ef þessu er miðstýrt.
Enn og aftur vil ég þó segja, af því að ég er hérna að munnhöggvast við stórvini mína í Samfylkingunni, að ég er sammála megintilganginum, en um framkvæmdina, miðstýringuna, er ég ekki sannfærður enn.