157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[16:22]
Horfa

Anna María Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Af því að hv. þingmaður hefur talað um að hann sé efnislega sammála því að það þurfi að setja skorður á síma og gerir sér grein fyrir hvaða áhrif það getur haft á námsumhverfi barna get ég ekki skilið að það þurfi að vera vandamál að settar séu miðstýrðar reglur sem skólarnir geta stuðst við. Ég kannast við þessa umræðu kennara en þessum röddum hefur fækkað mjög mikið. Þessar raddir um tækin, og jafnvel brigsl um að kennarar óttist tæknina og treysti sér ekki í hana, eru eiginlega liðin tíð. Mjög stór hluti náms í dag er stafrænn í gegnum námsforrit sem heitir Google Classrom og mjög margir skólar hafa nýtt sér. Börn eru því með tæki í skólanum til að vinna og þurfa ekki símana lengur. Rökin voru réttmæt á fyrstu stigum tæknivæðingar innan skólanna, sérstaklega þegar við vorum með börn af erlendum uppruna sem þurftu að styðjast við þýðingarforrit og slíkt. Þá þurftum við stundum að grípa til þess að nota símana en þess er ekki þörf lengur. Námsbreytingar hafa orðið og það eru í raun engin rök lengur fyrir því að hafa þurfi síma í skólunum. Þess vegna er þetta mjög gott eins og hv. þm. Dagbjört Hákonardóttir kom inn á áðan. Ég ætla bara að segja að við þurfum þennan stuðning. Við þurfum að geta vísað í lögin þegar við erum að taka þessar ákvarðanir.