157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[16:24]
Horfa

Tómas Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Önnu Maríu Jónsdóttur kærlega fyrir sitt seinna andsvar. Bæði hún og hv. þm. Dagbjört Hákonardóttir hafa hér verið að ræða að þetta séu lög sem geti stutt við og meiningin þá væntanlega sú að kennararnir og skólasamfélagið geti nýtt sér það. Ég skildi hv. þm. Dagbjörtu Hákonardóttur á þann hátt að hún hafi átt við að málin sem kæmu inn á borð síðar yrðu lögfræðilegs eðlis. Ég efast þó um að kennari fari að vísa í og hóta að hringja í mennta- og barnamálaráðherra þegar hann er að skamma barnið. Ég held að það gangi ekki alveg upp. (Gripið fram í: Það væri svolítið áhugavert. ) Það væri reyndar áhugavert. Ég er þó ekki sannfærður um þetta. Það er talað um eitthvað til að styðjast við en ef við værum komin með lög um þetta, sem yrðu þá væntanlega byggð á þessari reglugerð sem við og ráðuneytið ræðum núna, þá væru bara komin einhver lög og þá fer vald skólanna til þess að aðlaga sig aðstæðum út. Þetta eru áhyggjurnar sem ég hef, það sem ég er búinn að vera að reifa hér og ég vona að ég hafi svarað skýrt og skilmerkilega af því að við þurfum ekki að vera sammála, alls ekki. Ég er alls ekki á móti stafrænni kennslu. Eins og ég reifaði hér aðeins í ræðu minni áðan er internetið og tækni yfirleitt slíkur hluti af lífi okkar að það nær náttúrlega bara nær engri átt. Í raun er hún ástæðan fyrir því að við erum að tala um þetta hér í dag og höfum mögulega farið allt of djúpt í það. Þess vegna reifaði ég líka aðeins hvort allir væru með tækjakost fyrir þetta, sem ég vona. Það þarf kannski ekki endilega símann í það en það sem kennarar sem ég hef verið að ræða við nefna, og er ein af ástæðunum fyrir því að sambandið milli þeirra og ráðuneytisins hafi rofnað, er að það hefur ekki verið tekið tillit til þess að sumir hreinlega bara þurfi síma af félagslegum ástæðum. Aftur segi ég að þetta er hægt að leysa á gólfinu (Forseti hringir.) og þess vegna er ég búinn að gjalda varhuga við þessari miðstýringu hér í dag.