157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[16:46]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir hans ræðu, sem var einlæg og líklegast frá hjartans rótum. Það sem mig langar að spyrja hv. þingmann um varðar það sem kom fram áður í ræðum annarra þingmanna, t.d. Guðmundar Ara Sigurjónssonar, að það hafi orðið algjör sinnaskipti varðandi þetta mál hjá þessum þingmönnum. Mig langar að spyrja hv. þingmann: Hvað olli þessum sinnaskiptum og telur hann sig munu taka sinnaskiptum í öðrum málum sem hann telur vera rétt í dag? Náðirðu spurningunni?d