grunnskólar.
Frú forseti. Eins og kom fram í máli mínu hér áðan og hefur komið fram áður er ég með lesblindu og hef aðgang að Hljóðbókasafni Íslands. Þar hef ég t.d. náð í margar ómetanlegar bækur sem eru ófáanlegar á almennum markaði en eru til þar upplesnar. Síðan gerist það stundum að skírteini mitt rennur út og ég hef þurft að endurnýja. Síðast þegar ég endurnýjaði — ég held að það hafi örugglega verið fyrir fimm eða tíu árum, ég get fundið það á eftir — var á síðu Hljóðbókasafns Íslands óskað eftir læknisvottorði (Forseti hringir.) sem staðfesti lesblindu eða hugsanlega var matið ætlað öðrum sérfræðingi. Eins og ég hef sagt hérna áður tek ég bara lækni sem dæmi, bara að það sé staðfest faglegt mat.