grunnskólar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu. Ég ætla bara rétt að spyrja einnar mjög einfaldrar spurningar. Fyrst verð ég náttúrlega að lýsa yfir gríðarlegum vonbrigðum með að hafa misst einn mesta frelsismanninn, sem hefur lýst því nokkrum sinnum yfir á þessu löggjafarþingi að hann sé á móti boðum og bönnum, yfir í að vilja boð og bönn. En það er bara eins og það er.
Það er ástæða fyrir því að hv. þingmaður er á móti boðum og bönnum. Hann er búinn að segja það hér í ræðu að hann telji þau almennt ekki virka og þar erum við sammála. Mig langaði því bara að spyrja hv. þingmann: Af hverju heldur hv. þingmaður að þetta bann muni endanlega virka eitthvað betur en að leyfa bara skólayfirvöldum að gera það sem þau eru að gera núna og jafnvel bæta í og valdefla þannig án þess að banna þetta? Af hverju er þetta bann eitthvað betra bann en önnur sem hann er almennt á móti og hefur lýst svo yfir í þessu ræðupúlti?