157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[17:00]
Horfa

Jón Gnarr (V) (andsvar):

Frú forseti. Það fer eftir útfærslu á banninu hversu mikið flækjustigið verður. Ég held að því meiri sem skýrleikinn er, því skýrari sem lögin eru, því minni flækjur skapi þau yfirleitt. Ég vara því við því að vera með einhverjar hálfkaraðar setningar eins og ég nefndi, „leitast skal við“ o.s.frv. þar sem lagt er undir mat hvers og eins hvað teljist ásættanleg notkun eða ekki. Jú, það gæti skapað mikið flækjustig og mikil óþægindi fyrir fjölda fólks.