grunnskólar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir þessa ágætisræðu. Það var gaman að sjá hvernig forræðishyggjan blossaði upp hjá hv. þingmanni. Það gerist hjá ótrúlegasta fólki. Það sem mig langar hins vegar að spyrja hv. þingmann um er að hann nefndi hér að þetta er frumvarp þar sem allt kemur ekki fram. Það á eftir að setja reglugerð þar sem þetta verður einhvern veginn mótað og hagaðilar koma að þeirri mótun og þá að sjálfsögðu þingið líka, þ.e. allsherjar- og menntamálanefnd. Það stendur hins vegar í frumvarpinu að sömu hagaðilar og móta þessa reglugerð hafi ekki getað komið sér saman um að klára eina skýrslu og skila inn. Því eru greinilega mjög andstæð sjónarmið hjá hagaðilum. Samfélagið virðist þó vera svolítið á einni skoðun og maður heyrir meiri hluta þingsins hér sammælast, þótt þingmenn Sjálfstæðisflokksins tali flestir gegn forræðishyggjunni, kannski ekki alveg allir, ekki sá sem hér stendur, í þessu máli. Hvernig heldur hins vegar hv. þingmaður að hagaðilum takist að koma sér saman um reglugerð sem verður örugglega verulega íþyngjandi fyrir ákveðinn hóp kennara sem hefur gert það að sínu ævistarfi og fagmennsku að vera í kringum þessi tæki og sinna þeim? Það er kannski verið að taka spón úr þeirra aski? Hversu mikil völd eiga hagaðilar að hafa sem snúa beint að þeim og hafa jafnvel beinna hagsmuna að gæta í þessu máli?