grunnskólar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir góða spurningu sem er sannarlega, þegar hún kemur til manns, áleitin spurning á frumstigum þessa máls; út í hvaða ósköp við erum eiginlega að fara, að reyna að ná samkomulagi um það hvernig þetta símabann á að líta út. Eins og við sjáum af gögnunum eru mjög margir skólar, eiginlega allur meiri hluti skóla, augljóslega búnir að taka afstöðu til símabanns. Þannig hefur það verið frá því að farsímar komu yfirleitt til. Það er ekki eins og skólar hafi verið að kynnast snjallsímum í gær og séu í einhverju fáti að reyna að koma sér upp kerfi. Það eru flestir búnir að koma sér upp einhverju kerfi og þess vegna benti ég einmitt á í ræðu minni að það er auðvitað hætt við því að ef hið opinbera ætlar að stíga inn í þetta með einhver sjónarmið sem eiga að gilda alls staðar geta verið margvíslegar ástæður eða einhver menning sem hefur myndast í hverjum skóla fyrir sig sem það fellur illa að.
Þegar hv. þingmaður nefnir það er það sannarlega rétt að það er alveg hætt við því að þetta verði mikið þref og þras og við eigum auðvitað ekki eftir að fara varhluta af því þrasi inni í allsherjar- og menntamálanefnd þar sem við munum vinna þetta áfram. Af því að hv. þingmaður nefnir það líka þá er stuðningur við málið á meðal almennings. Þetta hljómar eins og einföld og þægileg lausn. Ég held að almenningur sé kannski ekki á heildina litið meðvitaður um að mjög víða er nú þegar komið símabann þannig að þegar stjórnvöld koma hér fram og segjast ætla að banna síma í skólum hljómar það auðvitað eins og snilldaraðgerð, sérstaklega fyrir fólk sem kannski hefur ekki innsýn í stöðuna, er ekki með börn í skólanum einmitt núna eða eitthvað slíkt en veit að símarnir eru slæmir og vill hlífa börnunum. Þá hljómar þetta svo einföld lausn. Ég held að við þurfum að draga það fram í þessari umræðu að eins og ástandið er einmitt núna er algjört símabann í næstum helmingi grunnskóla ef ráða má í greinargerð frumvarpsins. Í hinum helmingnum er símanotkun háð takmörkunum og ég býst við að það símabann sé ágætlega víðtækt þótt það sé ekki algjört. Við þurfum því að draga það fram í þessari umræðu og benda á, og ég held að það sé bara mjög eðlileg ábending í þessu frumvarpi, að þetta er engin lausn allra mála frá upphafi til enda. (Forseti hringir.) Þetta er einhvers konar kjörnun á vegum hins opinbera.