grunnskólar.
Virðulegur forseti. Eins og hv. þingmaður segir höfum við ekki þurft eitthvert lagaboð frá Alþingi og heimildir í reglugerð til ráðherra um að banna tyggigúmmí eða sælgæti, ekki frekar en dót. Þegar ég var lítil í skóla var það kannski meira mál að fólk væri að koma með dótið sitt. Nú er dótið bara í símanum. Það er alveg sama hvort það er tölvuleikur eða hvað það er. Þetta er allt hér. Það er í rauninni punkturinn sem ég er að benda á.
Af því hins vegar að hv. þingmaður kemur inn á það, og ég efast ekki um það því ég heyri þessa sögu líka frá skólunum, að stór hluti af starfi kennara og starfsmanna skóla fari oft í samskipti við foreldra sem eru kannski ósáttir við eitthvað eða vilja einhvern veginn að hlutirnir séu öðruvísi, þá hef ég líka heyrt að það væri miklu meiri þörf á því að fá aukið fjármagn frá hæstv. ráðherra í aukastarfsmann inn í skólann til að halda utan um það hvernig þessi tæki eru geymd og hvernig reglunum er framfylgt. Við höfum séð það í fréttum að það þarf sérstaka skápa fyrir þetta þannig að í því felst svolítil fjárfesting og vinna fyrir skólana að halda utan um þessar reglur sem þó þegar hafa verið settar. Það kann vel að vera að það sé allt í lagi að það séu einhverjar samræmdar reglur, en rétt eins og hv. þingmaður kemur inn á og mér virðist hv. þingmaður gera sér ljóst, þá útilokar það ekki að það verði einhver vandamál. Það er bara ekki þannig. Það verða enn þá áskoranir, alveg sama hvort ráðherra sé búinn að gera reglugerð eða ekki. Það verða áfram áskoranir við þetta. Annað eru skýr fyrirmæli frá hæstv. ráðherra og okkur um að það sé bara eðlilegt að skólarnir setji sér reglur eins og fyrrverandi hæstv. ráðherra hafi ætlað sér að gera með svona leiðbeiningarriti til skólanna þar til faghópurinn gat ekki komið sér saman um það. Þess vegna segi ég að það verður bara spennandi að sjá hvernig faghópurinn innan ráðuneytisins kemur sér saman um það hvernig þessi reglugerð verður best útfærð.