157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[17:40]
Horfa

Jón Gnarr (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir hennar ágætu ræðu. Mér fannst reyndar þingmaðurinn láta að því liggja að þessi vinna væri óþarfi. Þetta væri í rauninni ekki til neins af því að það væri hvort sem er hægt að gera þetta á einhvern annan hátt. Mér heyrðist það. Hún vék líka að því að kannski ætti ráðherra að vera að gera eitthvað annað en nákvæmlega þetta sem mér finnst svona, já, annað mál. Mér finnst þetta mjög gott skref og mér finnst þessi umræða sem við höfum átt hér í dag hafa verið mjög málefnaleg, heilbrigð og upplýsandi fyrir okkur, a.m.k. fyrir mig. Mér finnst felast í þessu frumvarpi ákveðin, hvað skal segja, blessun frá þinginu, þ.e. að ráðherra fái að skoða þessi mál nánar. Snjallsímanotkun í skólastofum finnst mér, eins og ég sagði í máli mínu áðan eftir að hafa kynnt mér málið betur, gríðarlega alvarlegt mál og mig langar að spyrja þingmanninn: Er hv. þingmaður ekki sammála því? Finnst henni þetta ekki það alvarlegt að það taki því að ræða það á þennan hátt?