grunnskólar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og tækifæri mitt til að vera alveg skýr í þeim efnum. Kannski hef ég ekki verið það nægjanlega í minni ræðu eða andsvörum en ég er á móti símanotkun inni í skólastofu, svo það sé alveg á tæru. Ég held að sími og snjalltæki trufli mjög kennslu og ég held að það sé óæskilegur fylgihlutur inni í skólastofu nema sérstök þörf sé til.
Hv. þingmaður spyr hvort ég sé að gera lítið úr þessu og segja að þetta sé ekki nógu mikilvægt til að ræða. Ég tek reyndar undir það með hv. þingmanni að þetta er búin að vera áhugaverð og skemmtileg umræða hér í dag og málefnaleg. Stjórnmál snúast hins vegar um forgangsröðun og það sem ég er að gagnrýna hér er forgangsröðun hjá hæstv. ríkisstjórn og forgangsröðun hjá hæstv. ráðherra því að nær allir skólar á Íslandi hafa nú þegar mótað sér stefnu og sett reglur um snjallsímanotkun eða símanotkun inni í sínum skólum svo að hluta til er búið að leysa þetta mál. Það er ógrynni af málum sem eru óleyst sem tengjast börnum og ungmennum og skólunum okkar. Ég tala með þessum hætti vegna þess að ég vil hvetja hæstv. ráðherra áfram í því að taka á þeim málum sem raunverulega þarf að taka á. Ég ætla bara aftur að segja: Að kenna börnum að lesa, skrifa og reikna. Grundvallarhugmyndin á bak við menntakerfið okkar og skólann okkar er að börnin okkar nái tökum á þessum þáttum.
Ég segi að sem samfélag höfum við að einhverju leyti náð tökum hvað varðar símanotkun inni í skólunum því skólarnir hafa sett sér reglur. Sveitarfélög hafa sett það inn í sínar áætlanir að skólarnir eigi að gera það eða jafnvel verið með samræmda reglu og ég veit ekki betur en að það hafi virkað ágætlega. Með því er ég ekkert að segja að það sé ekki í lagi að við gerum þetta. Ég hefði bara haldið að forgangurinn ætti að vera annars staðar, þar sem brennur á, til að mynda með samfélagsmiðlana eða til að mynda með grunnskólann okkar, til að mynda að frumvarp um námsgögnin komi hérna inn, til að mynda að kennarar í þessu landi hafi þá aðstöðu sem þeir þurfa til að kenna börnunum okkar, til að mynda með móttökuskólana sem ég hef nú mælt fyrir og ég sé að hæstv. ráðherra er allt í einu orðinn jákvæður fyrir. Ég fagna því mjög.