157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[17:45]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma með þetta mál hingað inn og sömuleiðis þakka fyrir umræðuna sem hér hefur verið. Þetta er búin að vera mjög fín og góð umræða og það er alveg augljóst að þetta mál setur okkur ekkert endilega alveg í hefðbundnar skotgrafir á milli flokka eða stjórnar og stjórnarandstöðu. Þetta er líka mál sem við höfum öll skoðanir á. Ég er reyndar svolítið ósammála þeim sem tala um að það sé ekki þörf á því að koma með þetta mál hingað inn í þingið. Ég hef einmitt skilið umræðuna þannig svolítið úti í samfélaginu og úti í skólasamfélaginu að það gæti verið gott að fá stuðning við það sem þó er verið að gera í skólum í að reyna að setja einhverjar skýrar reglur um þetta, þannig að einhver orð um það að við eigum að vera að ræða eitthvað annað sem tengist menntamálum — mér finnst oft svolítið auðvelt að fara í þær skotgrafir. Þetta t.d. lít ég á sem smá vörðu á þeirri leið að búa til umhverfi í skólunum sem geri einmitt kennurum auðveldara að koma námsefni til skila til barna og ungmenna. Þetta er auðvitað ekki það sem breytir öllu í því samhengi en þetta er einhver varða á þeirri leið.

Fyrst aðeins að grunnþættinum í þessu. Við erum öll sammála um að óheft notkun síma í skólum gangi ekki, þannig að það þurfa að vera einhverjar tilteknar reglur um þetta. Ég vona að við séum líka öll sammála um að þessi tækni sem símarnir byggja á getur verið óþrjótandi brunnur fróðleiks og það er hægt að nýta þessa tækni auðvitað í kennslu með margvíslegum hætti en aftur, regluverkið um það verður að vera skýrt vegna þess að þetta tæki er líka þess eðlis að það getur truflað, það getur fært nemendur frá því sem þeir eiga að vera að gera í kennslustundinni, þannig að ég hef ekki skilið þetta mál þannig að hér sé verið að stíga einhver skref í átt að einhverju sérstöku banni heldur bara verið að styrkja skólasamfélagið í því að geta verið með kannski aðeins samræmdari reglur sem svo aftur styðja skólastjórnendur, foreldra og nemendur í því starfi sem er í skólunum.

Mér finnst þetta mál líka vera þess eðlis, af því að hér er auðvitað verið að tala um heimild til ráðherra til að setja reglugerð, að allsherjar- og menntamálanefnd hafi nú ansi mikið svigrúm til þess að kalla bæði eftir upplýsingum, eins og alltaf er, en líka koma í nefndaráliti með einhverjar óskir og forskrift til ráðherra um það hvað ætti að hafa í huga þegar verið er að vinna málið áfram. Ég held að það verði ekkert flókið í sjálfu sér að ná ágætri sátt um það í nefndinni og hér í þinginu. En mér finnst engin ástæða til að gera lítið úr því að þessi umræða fari hér fram í dag og segja að hún einhvern veginn eigi ekki rétt á sér af því að það væri hægt að ræða eitthvað annað eða hægt að tala um skólastarf á einhverjum öðrum grundvelli heldur en hér er. Þetta er bara eitt púsl í stærri mynd og stórt og mikilvægt púsl, finnst mér.

Við erum auðvitað öll að upplifa í gegnum börnin okkar hvernig símarnir fléttast inn í skólastarf bæði með jákvæðum og neikvæðum hætti. Ég er oft, þegar ég er að ræða þessa hluti við börnin mín, að hugsa um umhverfið sem maður ólst upp í sjálfur. Mér finnst svo mikilvægt, af því að við erum svo fljót alltaf að tala um tæknina með neikvæðum hætti, hvað þetta er ótrúlega magnað fyrirbæri. Ég var fróðleiksfús drengur þegar ég var lítill en maður þurfti alltaf að vera að taka einhverja rúnta inn á bókasafn og annað til að sækja sér fróðleikinn. Við erum með bókstaflega allan fróðleik heimsins í símanum og eins og alltaf þá er þetta auðvitað spurning um það hvernig við notum tæknina. Það er hægt að nota hana til slæmra hluta. Hún getur haft slæm áhrif á okkur. Ég á stundum sjálfur í erfiðleikum með þennan síma en ég ætla að leyfa mér að fullyrða, og það gildir auðvitað líka um börn, að ef við náum að ýta þeim í réttar áttir þá geta jákvæðu afleiðingarnar af því að nota síma verið talsvert meiri heldur en hinar neikvæðu. Ef þær væru svona yfirgnæfandi neikvæðar þá held ég að við værum búin að taka kannski harðari umræðu um það að setja enn strangari reglur um símanotkun barna heldur en bara þegar kemur að skólanum. Ég vil bara nefna þetta til þess að undirstrika þann vilja minn að tæknin sem við erum með í höndunum — að regluverkið verður auðvitað að taka mið af því að við ákveðnar aðstæður í skólanum þá verður auðvitað að nýta þessa tækni til góðs því það er svo sannarlega hægt að gera.

Ég staldra líka aðeins við það, af því að menn hafa aðeins verið að tala um það líka að það skorti á samráð — ég er oft svolítið hugsi yfir þessari umræðu og ég geri auðvitað ekki lítið úr miklu samráði. Hér áður fyrr var kallað eftir því að það þyrfti einhvern vettvang um samráð áður en mál kæmu inn í þingið. Það erum við að gera með samráðsgátt. Nú er verið að tala um að það samráð sem er í samráðsgáttinni sé ekki nægjanlega mikið og þá gleymum við því oft að þingið og nefndarstarfið er auðvitað eitt allsherjarsamráð við hagaðila. Ég ætla að taka svolítið undir það sem hér hefur verið nefnt varðandi hæstv. ráðherra og ráðuneytið, að því efnismeiri sem umræðan verður í nefndinni og opnað á það hvers konar vinna verður unnin í framhaldinu og hvað mögulega gæti þá verið inni í þessum reglupakka sem við erum að innleiða, þeim mun auðveldara verður auðvitað að ná sátt um málið í nefndinni.

Ég lít ekki á þetta mál sem eitthvert allsherjarbann. Ég lít ekki á þetta mál sem forræðishyggju, ekkert frekar en ég lít á það að setja umferðarreglur sem forræðishyggju. Mér finnst þetta í raun og veru vera ákveðnar umferðarreglur utan um það sem fram fer í skólanum með tiltölulega jákvæðum hætti. Ég tek hins vegar undir þau orð sem hér hafa fallið um að reglugerðin og það sem kemur síðan úr ráðuneytinu má auðvitað ekki vera svo þröngt að það verði algerlega vonlaust fyrir skólana að hreyfa sig innan þess. En það er auðvitað bara útfærsluatriði sem mér finnst ekkert síður bíða allsherjar- og menntamálanefndar frekar en ráðuneytisins því að forskriftin getur auðvitað komið svolítið út úr nefndinni.

Ég hef tekið mikið eftir því þegar ég er að forvitnast um þessi mál og þegar ég hlusta eftir umræðu um síma í skólum að börn og ungmenni tala sjálf svolítið mikið um það að þetta geti verið mjög truflandi við kennslu. Það segir okkur auðvitað allt um þörfina fyrir það að reglurnar um þetta séu svolítið skýrar og ég lít á þetta mál einmitt þess eðlis að það sé bara hreinlega að styðja við skólastjórnendur. Skólastjórnendur finnst mér hafa kallað eftir þessu. Ég átta mig alveg á því að það getur stundum verið óvinsælt í þessum sal að tala um vilja almennings eða vísa í einhvern almennan óljósan vilja almennings en ég hef nú samt skynjað umræðuna þannig að það sé talsverður meiri hluti foreldra og jafnvel barna og ungmenna og skólastjórnenda sem vilji einmitt gott, skýrt og styðjandi regluverk við það sem er að gerast í skólanum á þessu sviði, þannig að ég sé ekki alveg hætturnar í því að þetta mál sé að koma hingað inn í þingið.

En mig langar bara að hvetja allsherjar- og menntamálanefnd til að gefa sér svolítið góðan tíma í þetta mál. Mér finnst þetta vera stórt mál að því leytinu til að þetta býr til umgjörð til að bæta skólana okkar, til að gefa kennurum, foreldrum og nemendum tækifæri einmitt til þess að einbeita sér að skipulögðu námi án mikilla truflana. Þannig að ég ætla ekki að gera lítið úr því að þetta þurfi að ræða og fara yfir.

Ég ætla bara að lýsa því yfir að ég styð þetta mál heils hugar en mér finnst skipta mjög miklu máli að hæstv. ráðherra og ráðuneytið komið svolítið sterkt inn í vinnuna hjá nefndinni og ég efast ekki um að það verði síðan niðurstaðan.