brottfararstöð.
Virðulegi forseti. Ég þakka ráðherra fyrir svarið. Hér nefnir ráðherra að þetta sé unnið að norskri fyrirmynd og í minni tíð í ráðuneytinu var starfshópur að störfum sem vann þar mjög mikla vinnu hvað þetta varðar. Það var horft til Noregs. Þá má eiginlega kannski setja þetta í þrjá flokka. Í Noregi fara allir fyrst í greiningarmiðstöð og í Noregi er ein greiningarmiðstöð fyrir allt landið, í Rote. Þar er fólk í allt að þrjár vikur. Síðan fer fólk í grunnmóttökustöðvar. Þær eru 12 í Noregi ef ég fer rétt með. Síðan eru 17 móttökumiðstöðvar í Noregi.
Ráðherra kynnir hér nú brottfararstöð og talar um skimun á fyrri stigum ferils. Staðfestir ráðherra að gert sé ráð fyrir sérstakri greiningarmiðstöð sem er þá þetta fyrsta stig eins og er í Noregi eða móttökuúrræði þar sem skimun og (Forseti hringir.) fyrstu aðgerðir fara fram, aðgreint frá brottfararstöðinni sjálfri? Ef já, hver er þá formlegur tilgangur greiningarmiðstöðvarinnar?